Tónlistarnámskeið fyrir börn upp að 16 mánaða aldri, ásamt foreldri/um:
Söng- og tónlistarsamvera fyrir ung börn og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva börnin. Stundirnar hafa jákvæð áhrif á þroska barnsins, notalegt samfélag og öruggt umhverfi. Foreldrar hitta aðra foreldra og börnin njóta þess að vera innan um önnur börn og fullorðna.
Við syngjum fyrir börnin skemmtileg lög og sálma, notum m.a. yfirtónarík hljóðfæri og forvitnilegan hljóðheim, vöggum þeim og dönsum og þannig fá þau að upplifa tónlistina á margvíslegan hátt sem hefur góð áhrif á tilfinninga- og hreyfiþroska þeirra.
Krílatónar fara fram á fimmtudögum kl. 10:30-11:15 og stendur yfir í 6 vikur  –  hefst 13. febrúar  og lýkur 27. mars (frí 27. febrúar).
Að tónlistarstund lokinni verður foreldrum boðið að njóta heitrar máltíðar í kirkjunni.
Þátttaka er gjaldfrjáls!
Ásbjörg Jónsdóttir, tónlistarkennari og Karl Olgeirsson, tónlistarstjóri kirkjunnar leiða stundirnar í sameiningu.
Skráning fer fram með því að fylla út formið sem opnast við að þrýsta hér.