Ástjarnarkirkja

 

Tónlist

Kór Ástjarnarkirkju
Kór Ástjarnarkirkju er með fjölbreytt og metnaðarfullt vetrarstarf . Má þar helst nefna að syngja við hinar ýmsu athafnir við kirkjuna okkar, bæði hefðbundna sálma, og söng við gospel, poppmessur, aðventutónleika, vortónleika og margt fleira. Kórinn er ungur og í uppbyggingu og er því tækifæri nú fyrir þá sem vilja komast í góðan sönghóp í sínu hverfi að koma til liðs við okkur. Á æfingum fá kórfélagar grunnkennslu í söngtækni og góða undirstöðu í raddbeitingu og raddþjálfun.  Kórinn getur alltaf bætt við sig söngfólki svo ekki hika við að hafa smaband….

Æfingar eru á miðvikudagskvöldum frá kl. 19.30 - 21.00.
Stjórnandi kórsins er Helga Þórdís Guðmundsdóttir og er best að hafa samband við hana á netfangið tonleikur@simnet.is eða í síma 8683110 fyrir frekari upplýsingar.

Stúlknakór Ástjarnarkirkju                                                                                                                         Er kór skipaður stúlkum frá 10 ára aldri.  Æfingar kórsins eru alla miðvikudaga kl 15.00 og hefjast þann 9. september.  Fylla þarf út innritunarblað (sem sjá má hér fyrir neðan)  og annaðhvort senda það á Helgu kórstjóra á netfangið tonleikur@simnet.is  eða mæta með það í kirkjuna til okkar.

Stúlknakór - innritunarblað

Stúlknakórinn stofnaður

Ástjarnarsystur                                                                                                                                             Er vísir af kvennakór sem stofnaður er út úr Kór Ástjarnarkirkju.  Markmið Ástjarnasystra er að bjóða upp á metnaðarfullan söng við hin ýmsu tækifæri s.s. Brúðkaup og jarðarfarir.                                                                                                  

Rafsálmar kirkjunetsins:

http://kirkjan.net/salm/salmbok.htm

Sálmabók Þjóðkirkjunnar, textar:

http://tru.is/salmabok

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS