Ástjarnarkirkja

 

Saga Ástjarnarkirkju

 2001
  • 11. OKTÓBER
    Stofnfundur Vallasóknar (vinnuheiti) í Félagsheimili Hauka á Völlum.
  • 5. DESEMBER
    Fyrsti almenni fundur Vallasóknar í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Sóknarnefnd skipti með sér störfum. Jónatan Garðarsson dagskrárgerðarmaður kjörinn formaður.

 2002

  • 9. JÚNÍ
    Fyrsta Guðsþjónusta sóknarinnar haldin í félagsheimili Hauka
  • SEPTEMBER - Nafni sóknarinnar breytt í Ástjarnarsókn 
  • SEPTEMBER- Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn sameinaðar í Tjarnaprestakall. Séra Carlos Ari Ferrer settur í embætti sóknarprests.

2003

  • MARS
    Nýtt píanó og predíkunarstóll, hannaður af Sigþóri Aðalsteinssyni, helguð og tekin í notkun.

2004

  • MAÍ
    Æskulýðsfulltrúi ráðinn í fullt starf.
  • JÚNÍ  
    Kirkjubyggingasjóður stofnaður. Stofnframlag kr. 2,5 milljónir.
  • OKTÓBER     
    Kirkjukór Ástjarnarkirkju stofnaður. Stofnfélagar, 7 konur.
     
  • DESEMBER  
    Kirkjugripir hannaðir af Sigurþóri Aðalsteinssyni teknir í notkun á aðfangadag. Gripirnir voru unnir af Trésmiðju Gylfa, Vélsmiðju Jóhanns Ólafs og Vélsmiðju Konráðs Jónssonar.

2005

  • OKTÓBER    
    Safnaðarblað Ástjarnarsóknar hefur göngu sína.

2006

  • JANÚAR
    Sóknin fær úthlutaðri lóð undir kirkju að Kirkjuvöllum 1.
  • APRÍL 
    Bæjaryfirvöld bjóða sókninni tvær færanlegar kennslustofur sem bráðabirgða húsnæði

2007

  • 2. SEPTEMBER    
    Séra Bára Friðriksdóttir sett inn í embætti
    sóknarprests Tjarnaprestakalls
  • 16. SEPTEMBER   
    Nýuppgerður kirkjuskáli Ástjarnarkirkju helgaður og safnaðarstarf flutt í hann úr félagsheimili Hauka

2009

  • MARS
    Samkeppni um merki Ástjarnarkirkju. Tillaga Péturs Baldvinssonar, grafísks hönnuðar ber sigur úr bítum.
     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS