Ástjarnarkirkja

 

sunnudagaskóli 25. okt. kl. 11

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11 með Fríðu og bangsa, sr. Báru og Helgu á píanóinu. Skemmtilegar sögur, verkefni, sungið fyrir afmælisbörn, afmælisgjöf og bæn. Litaðar myndir á eftir, spjall og ávextir.

Sjáumst glöð í fjölskyldustund í kirkjunni þinni.

Bára Friðriksdóttir, 23/10 2009

Síðdegis sveifla

Sunnudaginn 25. október kl. 17 verður í Ástjarnarkirkju Síðdegis sveifla.  Þar mun Herdís Egilsdóttir kennari talar um vináttuna og Matthías Baldursson saxófónleikari og Áslaug Helga Hálfdánardóttir

Lesa áfram …

Helga Þórdís Guðmundsdóttir, 23/10 2009

Sunnudagur 20. september kl. 11

Messa og barnastarf kirkjunnar þar sem fermingarbörn og foreldrar þeirra eru boðin sérstaklega velkomin. Fundað verður með þeim eftir kaffi. Börnin í sunnudagaskólanum fái tækifæri til að lita, leysa þrautir dagsins og gæða sér á ávöxtum og djúsi.

Ingi Þór, 16/9 2009

Kór Ástjarnarkirkju býður nýja félaga sérstaklega velkomna

Okkar ungi kór óskar alveg sérstaklega eftir söngfuglum í allar raddir.                       Æfingar eru öll miðvikudagskvöld kl 19.30                                                                                       upplýsingar hjá Helgu Þórdísi tónlistarstjóra ís. 8683110 eða á netfanginu tonleikur(hjá)simnet.is

Helga Þórdís Guðmundsdóttir, 12/9 2009

Sr. Bára er í leyfi til 17. september

Sóknarpresturinn verður í fríi fram yfir miðvikudaginn 17. sept. og verður ekki hægt að ná í hann í síma eða tölvupósti á þeim tíma.

Séra Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur leysir af á meðan. Þurfir þú eða þínir aðstoð prests á meðan leysir hún úr því. Hægt er að ná í hana í s. 5667301, 588 4164 og 862 4164. Einnig á netfanginu kristin.tomasdottir@kirkjan.is

Þurfir þú að ná í sr. Báru getur þú hringt í hana á fimmtudaginn 17. september.

Venjubundið safnaðarstarf verður á sínum stað.

Bára Friðriksdóttir, 9/9 2009

Fermingarfræðsla Í Ástjarnarkirkju veturinn 2009-10

Fermingarfræðslan í vetur verður sem hér segir:

Í Ástjarnarkirkju fyrir fermingarbörn búsett á Völlunum kl.14:00 til kl.15:00 á þriðjudögum.

Í Áslandsskóla fyrir fermingarbörn búsett í Áslandinu kl.13:45 til kl.14:45 á miðvikudögum.

Hefst fermingarfræðslan þriðjudaginn 22.september og miðvikudaginn 23.september.

Ingi Þór, 8/9 2009

Fyrsta fjölskyldumessa og sunnudagaskóli vetrarins

Sunnudaginn 6.september kl.11 verður fyrsta fjölskyldamessa vetrarins í Ástjarnarkirkju.  Á sama tíma verður fyrsti sunnudagaskóli vetrarins.  Kaffi, djús, kex og ávextir í boði eftir stundirnar.  Vonumst til að sjá sem flesta.

Ingi Þór, 5/9 2009

Kór Ástjarnarkirkju

Æfingar hjá Kór Ástjarnarkirkju eru alla miðvikudaga frá kl. 19.30 og hefjast þann 2. september næstkomandi.  Ef þú ert söngfugl og vilt syngja í frábærum félagsskap erum við kórinn fyrir þig. 

Kórstjóri er Helga Þórdís Guðmundsdóttir og er hægt að hafa samband við hana á netfanginu tonleikur@simnet.is  eða í síma 8683110

Helga Þórdís Guðmundsdóttir, 21/8 2009

Stúlknakór Ástjarnarkirkju

Æfingar stúlknakórsins verða alla miðvikudaga kl. 15.00  og hefjast þann 9. september næstkomandi.

Kórstjóri er Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri Ástjarnarkirkju.  Allar stúlkur frá 10 ára aldri eru velkomnar í kórinn.  Stúlkurnar þurfa að skrá sig á innritunarblaði sem er hér; Stúlknakór innritunarblað  Best er að vista skráningarblaðið og senda Helgu kórstjóra það í viðhengi á netfangið tonleikur@simnet.is  eða prenta það út og mæta með það í kirkjuna.

Helga Þórdís Guðmundsdóttir, 21/8 2009

Kirkjugrallaranámskeið

Við náðum að fjölgað plássum á námskeiðið hjá okkur í ágúst.  endilega hafið sambandi í gegnum tölvupóst ingithor@kirkjan.is eða í 861-4099 ef þið viljið skrá börnin ykkar.  Nánari upplýsingar í frétt hér að neðan.

Ingi Þór, 18/7 2009

Viðtalstímar sóknarprests
- - Þriðjudagar kl. 13-14
- Miðvikudagar kl. 15-16:30
eða eftir samkomulagi
í síma 565-0022 og 891 9628

 

Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS