Næsta sunnudag ætlum við að hafa það afskaplega huggulegt í sunnudagaskólanum. Fyrst ætlum við að syngja saman nokkur af okkar uppáhaldslögum, heyra um Daníel í ljónagryfjunni (daniel-sunnudagaskolinn) og spjalla við Mýslu og Hvata hvolp. Síðan munum við slá köttinn úr tunnunni eða kassanum, allt eftir efnum og ástæðum. Að lokum setjumst við saman og snæðum rjómabollur.

Verkefnablöð, litir, djús og kaffi verða á borðum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 8/2 2010
Næsta sunnudag, þann 7.febrúar, verður fjölskyldumessa í Ástjarnarkirkju. Þá fellur sunnudagaskólinn inn í guðsþjónustu dagsins, sem verður í frjálslegra lagi, sniðin að þörfum barna og fullorðinna. Efni hennar tekur mið af því að þennan dag er Biblíudagurinn. Dúkkurnar Hvati og Mýsla koma í heimsókn og kíkja í fjársjóðskistuna góðu og sögð verður saga af Jesú og lærisveinum hans ( jesusstillirstorminn-sunnudagaskolinn). Allir hjartanlega velkomnir.
Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 4/2 2010
Þá sýndi brúðuleikhús Helgu Steffensen okkur leikritið Númi á ferð og flugi. Kirkjan fylltist af glaðlegum gestum sem fylgdust spenntir með ævintýrum Núma. Að sýningu lokinni heilsuðu dúkkurnar, sem búa í sunnudagaskólanum allt árið, upp á gestina og við sungum saman sunnudagaskólalagið Daginn í dag. Síðan fóru allir yfir í safnaðarheimilið og fengu sér djús og/eða kaffi og kex og dvöldu um stund við liti og spjall. Takk fyrir komuna. Við vonumst til að sjá ykkur áfram í sunnudagaskólanum í vetur.



Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 3/2 2010
Næsta sunnudag, 31.janúar, kemur Helga Steffensen í heimsókn til okkar með brúðuleikritið „Númi og ferð og flugi“. Sýningin fellur inn í hefðbundinn tíma sunnudagaskólans sme hefst kl. 11:00.
Allir hjartanlega velkomnir
Ingi Þór, 28/1 2010
12-sporin hefjast mánudagskvöldið 11. janúar kl. 19.
Þessi hópur er lokaður, nýtt námskeið hefst næsta haust og verður auglýst nánar þá.
Foreldramorgun hefst aftur þriðjudaginn 12. janúar kl. 10 -12.
Góður hópur foreldra hefur mætt í haust og átt saman uppbyggjandi og ánægjulegar stundir. Foreldramorgnar eru opnir fyrir alla heimavinnandi foreldra. Markmiðið er að rjúfa einangrun, skapa tækifæri fyrir fólk í sókninni til að kynnast og uppbyggjast í fræðslu. Oftast er frjáls samræða og prjónaskapurinn hefur verið í mikilli sveiflu í haust, en reglulega er fræðsla um mismunandi efni sem snúa að foreldrum og uppalendum. Þú ert velkomin/n með okkur alla þriðjudaga frá kl. 10 - 12.
Bára Friðriksdóttir, 7/1 2010
Sunnudaginn 10. janúar kl. 11 verður fyrsti sunnudagaskóli ársins.
Mikið sungið, líf og fjör. Mýsla kemur í heimsókn og rabbar við hundinn. Þetta er kjörin gæðastund fyrir fjölskylduna. Sr. Bára, Fríða, Stella, Helga og Saga taka á móti ykkur. Allir velkomnir.
Bára Friðriksdóttir, 7/1 2010
Ástjarnarkirkja ásamt, Íþróttafélaginu Haukum, Íþróttafélaginu Firði og Sundfélagi Hafnarfjarðar héldu glæsilegt aðventukvöld í gær í sal Hauka. Það var margt um manninn og glæsileg dagskrá gladdi augu og eyru gesta.
Vonandi er þetta upphafið af skemmtilegri hefð á aðventu.
Þökkum við öllum þeim sem komu að verki og gerðu þetta kvöld svo glæsilegt.
Ingi Þór, 7/12 2009
Síðasti fermingartími fyrir jól verður í Ástjarnarkirkju fimmtudaginn 3. des.
Fermingarbörn í Hraunvallaskóla eiga að mæta kl. 16 - 18
Fermingarbörn í Áslandsskóla eiga að mæta kl. 18 - 20
Við horfum á bíómynd um fæðingu frelsarans og unglingarnir mega hafa með sér sparinesti.
Bára Friðriksdóttir, 2/12 2009
Fermingarbörnin í Ástjarnar- og Kálfatjarnarsókn hafa dvalið í Vatnaskógi í tvo sólarhringa. Allt hefur gengið vel og fjör bæði í fræðslu og leik. Áætluð heimkoma í Ástjarnarkirkju er kl. 15:30 en í Stóru-Vogaskóla kl. 16. Heimkomu getur skeikað um 10 mín. til eða frá.
Bára Friðriksdóttir, 14/11 2009