Ástjarnarkirkja

 

U2 messa í vor

In the name of love  

Haldin verður U2 messa í maí á vegum Ástjarnarsóknar. Kórinn og tónlistarstjórinn ásamt hljómsveit eru byrjuð að undirbúa fjörið. Báðir prestarnir leiða helgistundina. Hjá okkur verður allt í botni með Drottni í vor og þú ert velkomin/n með okkur.

Nánar auglýst síðar.

Bára Friðriksdóttir, 12/4 2010

Tómas efast

Í sunnudagaskólanum næsta sunnudag, 11.apríl, segjum við söguna um Tómas efasemdarmann.

Eirný, Stella Bryndís, Arndís Embla og Fríða taka vel á móti ykkur. Brúðurnar Hvati og Mýsla koma í heimsókn. Eirný spilar á gítarinn og við syngjum heilmikið að venju.

Allir hjartanlega velkomnir.

Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 9/4 2010

Helgihald Ástjarnarkirkju um dymbilviku og páska

Skírdagskvöld kl. 20

Þetta er yndisleg athöfn þar sem við setjumst við fætur Jesú með lærisveinunum og rifjum upp atburði síðustu kvöldmáltíðar.  Altarisganga með nýbökuðu ósýrðu brauði (ekkert ger). Áhrifaríkur er lestur  sjö setninga Krists á krossinum  og slökkt á kerti eftir hverja setningu.  Sóknarnefndarfólk ásamt fleirum mun afskrýða altarið til minningar um pínu Jesú. Því næst verða lagðar fimm rauðar rósir á altarið til merkis um sár Krists á krossinum. Félagar úr kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir.

Páskadagur kl. 11

Hátíðarguðsþjónusta fyrir alla fjölskylduna þar sem upprisu frelsarans er fagnað. Ástjarnarsystur leiða söng undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Harpa Magnúsdóttir spilar á trompet. Prestur sr. Kjartan Jónsson.  Það verður óvæntur glaðningur fyrir börnin og páskaegg í messukaffinu.

Bára Friðriksdóttir, 31/3 2010

Gulur dagur og páskastemning

Sunnudaginn, 28.mars, Pálmasunnudag, verður mikil páskastemning í sunnudagaskólanum. Þá verður gulur dagur hjá okkur og því gaman ef sem flestir gætu komið í einhverju gulu eða með eitthvað gult.

Við segjum söguna um innreiðina í Jerúsalem og ræðum um hvað gerðist á páskunum. Brúðurnar Mýsla og Hvati aðstoða okkur við að kíkja í fjársjóðskistuna sem verður að þessu sinni full af einhverju sem mun örugglega koma okkur í mikið páskaskap. Og að sjálfsögðu munum við syngja mikið saman.

Allir hjartanlega velkomnir.

Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 23/3 2010

Grænn dagur í sunnudagaskólanum

Sunnudaginn, 14.mars, verðum við græn úr gleði í sunnudagaskólanum. Því allir sem koma í sunnudagaskólann þennan dag ætla að vera í einhverju grænu eða með eitthvað grænt.

Við segjum söguna um tollheimtumanninn Sakkeus. Brúðurnar Mýsla og Hvati aðstoða okkur við að kíkja í fjársjóðskistuna. Og að sjálfsögðu syngjum við öll saman af hjartans lyst.

Allir innilega velkomnir.

Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 9/3 2010

Æskulýðsdagurinn á sunnudaginn


Fjölskyldumessa klukkan 11.

Stúlknakór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur tónlistarstjóra.

Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir stjórnar framlagi frá sunnudagaskólanum.

Ingi Þór Hafbergsson æskulýðsfulltrúi prédikar.

Prestur er sr. Kjartan Jónsson.

Hressing og samfélag á eftir messu.

Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 6/3 2010

Batamessa sunnud. 7. mars kl. 17.

 

Batamessa er hugsuð fyrir12-spora fólk og alla sem vilja rækta trú sína. Stundin er að uppbyggingu frábrugðin venjulegri messu. Gefið er sérstakt rými fyrir trúariðkun. 12-spora vinur gefur vitnisburð, fræðsla um heilagan anda, léttur söngur, löfgjörð og fyrirbæn. Fólk í 12-sporastarfi kirkjunnar aðstoðar. Gott samfélag á eftir í messukaffinu. Vertu velkomin (n) að upplifa nýja nálgun í helgihaldi.

Undir lok stundarinnar verður boðið upp á einstaklingsmiðaða fyrirbæn með handayfirlagningu.

Bára Friðriksdóttir, 5/3 2010

Jesús mettar

Í sunnudagaskólanum næsta sunnudag, 28.febrúar, segjum við söguna um það þegar Jesús mettaði fimm þúsund manns með nesti lítils drengs ( Jesús mettar fimm þúsund).

Brúðurnar Hvati og Mýsla koma íheimsókn og við syngjum heilmikið að venju.

Í lok stundarinnar kynnum við nýtt límmiðakerfi sunnudagaskólans fyrir börnunum.

Allir hjartanlega velkomnir.

Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 22/2 2010

Fermingardagar vorið 2011

Fermingar Ástjarnarsóknar eru í Hafnarfjarðarkirkju tvo laugardaga á hverju vori. Sumir eru farnir að huga að fermingum að ári og liggja dagsetningar nú fyrir.

Fermingar eftir ár eru laugardagana 9. og 16. apríl 2011 kl. 10:30 og 13:30.

Skráningarblöð verða send heim til sóknarbarna í maí.

Fermingar Ástjarnarsóknar á vori 2010 í Hafnarfjarðarkirkju eru

10. og 17. apríl kl. 10:30 og 13:30.

Bára Friðriksdóttir, 15/2 2010

Sundmessa Ástjarnarkirkju í Ásvallalaug 14. feb. kl. 11

Ástjarnarkirkja verður með messu í Ásvallalaug sunnudaginn 14. feb. kl. 11.

Börn úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og Sundfélaginu Fjörður taka þátt.

Kirkjukórinn syngur á sundlaugarbakkanum undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Séra Bára Friðriksdóttir talar um blessun vatnsins og félagar úr sóknarnefnd lesa ritningatexta. Að lokum verður sprellað í lauginni.

Kirkjugestir verða í litlu lauginni eða pottum og geta slakað á á meðan himnesk blessun svífur yfir. Það væri gaman að fá sem flesta með okkur í laugina þennan morgun.

 

Sunnudagaskólinn á sama tíma í Ástjarnarkirkju.

Kötturinn sleginn þar úr tunnunni.

Bára Friðriksdóttir, 11/2 2010

Viðtalstímar sóknarprests
- - Þriðjudagar kl. 13-14
- Miðvikudagar kl. 15-16:30
eða eftir samkomulagi
í síma 565-0022 og 891 9628

 

Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS