Sunnudaginn 27. júní 2010 verður göngumessa safnaðarins. Lagt verður af stað kl. 11 frá Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1 Hafnarfirði. Lesið upp úr Fjallræðunni á leiðinni. Þema ræðunnar á fjallinu verður samkynhneigð, gagnkynhneigð og kristni. Skoðuð verða ýmis sjónarhorn og varpað ljósi ritskýringar á erfiðan texta í Rómverjabréfinu.
Fólk er hvatt til að klæðast eftir veðri. Þau sem vilja, koma með göngustafi en allir með góða skapið. Kakó og vatn fyrir gönguþyrsta á toppnum. Þar munum við samgleðjast samkynhneigðum og fjölskyldum þeirra.
Allir hjartanlega velkomnir. Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri og séra Bára Friðriksdóttir leiða stundina.
Bára Friðriksdóttir, 24/6 2010
Bára Friðriksdóttir, 13/5 2010
Messan verður í veislusal Haukahússins fim. 13. maí kl. 20
Hér eru nokkrar myndir af kóræfingu
Bára Friðriksdóttir, 12/5 2010
Regína og Svenni í sveiflu
U2 messa gegn fátækt og ójöfnuði verður haldin í Haukahúsinu, fimmtudaginn 13. maí kl. 20. Messan verður haldin í veislusal Hauka og í samvinnu við þá þar sem kapella Ástjarnarkirkju rúmar ekki nógu marga.
Gestasöngvarar verða Regína Ósk og Svenni Þór.
Hljómsveit Hjartar Howser leikur undir.
Kór Ástjarnarkirkju syngur, undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Hér er frumflutningur á lögum U2 með íslenskum textum með góðfúslegu leyfi Bono. Sungin verða sjö lög.
Það verður spilað brot úr viðtali við Bono og tónlistarmyndbandi hans.
Þjónandi prestar verða sr. Kjartan Jónsson og sr. Bára Friðriksdóttir.
Vertu velkomin/n að njóta Guðs orðs í tali og tónum með okkur.
Bára Friðriksdóttir, 12/5 2010

Sunnudaginn, 2.maí, var mikið um dýrðir í kirkjunni. Dagurinn byrjaði með fjölskylduguðsþjónustu, sem sunnudagaskólinn féll inn í. Sr.Bára stjórnaði stundinni og kirkjukórinn söng undir stjórn Helgu Þórdísar. Sunnudagskólabörnin og leiðtogar þeirra tóku virkan þátt og sungu mörg fjörug sunnudagaskólalög. Kirkjan var þéttskipuð frábærum gestum og þar ríkti mikil gleði og góð stemning.
Lesa áfram …
Ingi Þór, 9/5 2010

Við í kirkjunni finnum fyrir aukinni eftirvæntingu fyrir U2 messunni sem verður að kvöldi uppstigningardags 13. maí kl. 20 í Haukahúsinu. Gestasöngvarar verða Regína Ósk og Svenni Þór. Fólk er farið að spyrja presta, starfsfólk og kórfélaga um U2 messuna. Mikill áhugamaður um U2 sem farið hefur á tónleika með honum sagði undirritaðri að Bono héldi alltaf predikanir á sínum tónleikum og gætu þær orðið 20 mín. langar. Þá stíga aðrir hljómsveitarmeðlimir af sviði og leyfa honum að eiga orðið. Orð fagnaðarerindisins sem hann gjarnan boðar.
Hjá okkur mun sr. Kjartan boða fagnaðarerindið en ég lofa ykkur því að hugvekja hans verður ekki lengri en 5 mínútur. Mætum og verum saman í stuði með Guði.
Bára Friðriksdóttir, 4/5 2010
Sunnudaginn, 2.maí, verður
fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00.
Prestur sr. Bára Friðriksdóttir.
Kór Ástjarnarkirkju syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Síðasti sunnudagaskóli vetrarins fellur inn í guðsþjónustuna.

Á eftir verður lokahátið sunnudagaskólans. Þar sem haldið verður upp á að góður vetur er á enda og sumarið tekið við.
Hoppukastali, grillaðar pulsur, gleði og fjör.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 29/4 2010
Það verður U2 messa að kvöldi uppstigningardags, fimmtudaginn 13. maí kl. 20 í Haukahúsinu.
Ástjarnarsókn og Haukarnir vinna saman að þessu verkefni.
Kórinn æfir nú af krafti U2 lög Bono´s sem sr. Gunnar Sigurjónsson hefur íslenskað fyrir kirkjuna.
Margt verður sungið og síðar verður upplýst um einsöngvara.
Hér textinn In the Name of Love í íslenskri þýðingu sr. Gunnars
og ber nafnið Ástin ein.
Hann kom í nafni kærleikans
Hann kom og hvarf á braut
Hann kom í krafti sannleikans
og kúgun valdsins braut.
Það er ástin ein
Hvað er meira en ástin ein.
Það er ástin ein
Hvað er meira en ástin ein.
Laus við freisting – til frelsunar
fór hann upp á kross.
Svívirtur og sjálfur var
svikinn þó með koss.
Það er ástin ein
Hvað er meira en ástin ein.
Það er ástin ein
Hvað er meira en ástin ein.
(hún ein varir)
Við hörmunganna hróp og níð
heldur á krossins stað
Með ræningjum og rustalýð
það reynist fullkomnað.
Það er ástin ein
Hvað er meira en ástin ein.
Það er ástin ein
Hvað er meira en ástin ein.
Bára Friðriksdóttir, 21/4 2010
Sunnudaginn, 18.apríl, verður náttfatamorgunn í sunnudagaskólanum.
Þennan morgunn verðum við öll svo löt að við nennum ekki að klæða okkur og mætum bara á náttfötunum í sunnudagaskólann.

Þar verður margt til gamans gert að venju. Við heyrum söguna um það þegar Jesús steig upp til hinma. Brúðurnar Hvati og Mýsla koma í heimsókn og velta sögunni fyrir sér með okkur. Eirný spilar á gítarinn og við syngjum af hjartans lyst.
Hlökkum til að sjá ykkur öll, syfjuð og sæt á náttfötunum.
Fríða, Eirný, Stella Bryndís og Arndís Embla.
Hólmfríður Sigríður Jónsdóttir, 14/4 2010