Ástjarnarkirkja

 

Vefur Ástjarnarkirkju

Þessi vefur er einskonar vefkirkja. Staður þar sem við veitum og öflum upplýsinga og hann er gátt til frekari samskipta. Það gleddi okkur, aðstandendur hans, ef þú kæmir oft í heimsókn, þó það væri eingöngu til að fylgjast með fréttum. Fyrst um sinn má búast við vikulegri uppfærslu en með auknu starfi má búast við að vefurinn taki við sér. Lesa áfram …

Ingi Þór, 30/11 2006

Vikan 3. - 10. desember

Aðventuguðsþjónusta sunnudaginn 3. desember kl. 17 í samkomusal Hauka, Ásvöllum. Barnakórinn, kirkjukórinn og fermingarbörnin leiða helgihaldið. Anna Ingólfsdóttir, jógakennari og lífskúnstner prédikar. Lesa áfram …

Ingi Þór, 27/11 2006

Barnakór

Barnakór fyrir börn í 5. bekk og eldri í samkomusal Hauka, Ásvöllum á þriðjudögum kl. 16.30 - 18.00.

Kerfisstjóri, 18/9 2006

Æskulýðssíða

Þá er komin upp ný síða fyrir æskulýðsstarfið (já, og slatti af myndum á myndasíðu kirkjunnar).

Kerfisstjóri, 4/9 2006

Fermingablogg

Opnum fermingarblogg til stuðnings við fermingarundirbúning í vetur. Þar er að finna tilkynningar, fréttir, verkefnalýsingar og annað, sem e.t.v. gleymdist að segja eða glósa í tíma …

Kerfisstjóri, 19/8 2006

Starfsáætlun — drög

Starfsáætlun Tjarnarprestakalls er vinnuplagg sóknarprests, starfsmanna kirknanna og sóknarnefndar, lagt til grundvallar safnaðarstarfi næstu ára. Það birtist hér sem drög en búast má við endanlegri gerð þessarar áætlunar með hausti 2006. Athugasemdum vel tekið.

Lesa áfram …

Kerfisstjóri, 6/7 2006

Skýrsla formanns

Velkomin á fjórða aðalsafnaðarfund Ástjarnarsóknar!

Á þessum fundi munu fjórir nefndarmenn sem kosnir voru á stofnfundi safnaðarins 11. október 2001 hverfa úr sóknarnefnd. Kristján Stefánsson fráfarandi ritari, er fluttur úr sókninni og því ekki lengur kjörgengur, Magnús Baldursson fráfarandi gjaldkeri og Vilborg Elísdóttir fráfarandi varagjaldkeri hafa óskað eftir að hætta. Sóknarnefnd þakkar þeim fyrir störf sín fyrir söfnuðinn á þessum fimm árum sem liðin eru frá því söfnuðurinn var stofnaður. Undirritaður mun sömuleiðis hætta í sóknarnefnd vegna mikilla anna og hverfa frá starfinu að svo komnu.

Lesa áfram …

Kerfisstjóri, 5/6 2006

Ársskýrsla æskulýðsfulltrúa

Æskulýðsstarf 2005-2006 ásamt hugmyndum um næstu skref með auknu safnaðarstarfi. Athugasemdir vel þegnar hér fyrir neðan.

Lesa áfram …

Kerfisstjóri, 5/6 2006

Fermingardagar 2007 og 2008

Fermt verður í Hafnarfjarðarkirkju

laugardaginn 31. mars 2007 kl. 10
(æfing fermingar 29. mars kl. 17, börn mæti með foreldrum sínum)

laugardaginn 21. apríl 2007 kl. 11
(æfing fermingar 18. apríl kl. 17, börn mæti með foreldrum sínum)

laugardaginn 15. mars 2008 kl. 10 og kl. 14
(æfing fermingar 13. mars kl. 17.00 og 17.45, börn mæti með foreldrum sínum)

laugardaginn 26. apríl 2008 kl. 10 og 13
(æfing fermingar 23. apríl kl. 17.00 og 17.45, börn mæti með foreldrum sínum)

Með fyrirvara um breytingar.

Kerfisstjóri, 2/6 2006

TTT

Dagskrá TTT Töff Töfrandi Taktfast er tilbúin. Allir 10 til 12 ára krakkar eru velkomnir í félagsmiðstöðina á þriðjudögum frá kl. 17 til 18. Fullt verður í gangi eins og Eggjakast, náttfatapartý, bíósýningar, leikir og annað fjör. Kíkjið á dagskránna hér að neðan og sjáið hvaða fjör verður í boði.

Hlökkum til að sjá ykkur

Ingi, Anna Birna og Aldís

Kerfisstjóri, 22/9 2005

Viðtalstímar sóknarprests
- - Þriðjudagar kl. 13-14
- Miðvikudagar kl. 15-16:30
eða eftir samkomulagi
í síma 565-0022 og 891 9628

 

Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS