Ástjarnarkirkja

 

Sóknarprestur kveður

Valnefnd valdi sr. Báru Friðriksdóttur næsta sóknarpest Tjarnaprestakalls á valnefndarfundi 6. júlí. Um leið og ég þakka samfylgdina og móttökurnar síðustu fimm árin óska ég sr. Báru velfarnaðar í störfum og ykkur öllum Guðs blessunar.

Sr. Carlos Ferrer.

Ingi Þór, 8/7 2007

Fræðsluvefur Ástjarnarkirkju

Við erum stolt af því að hafa opnað fræðsluvef Ástjarnarkirkju, sem mun halda utan um allt það fræðsluefni og hópastarf sem fram fer í söfnuðinum. Sem stendur er eru komin námskeið fyrir fermingarbörn og fjölskyldur fermingarbarna á vefinn, en í framtíðinni mun hann hýsa lokuð svæði hópastarfs og umræðna.

Lesa áfram …

Ingi Þór, 6/6 2007

Fermingarundirbúningur 2007 - 2008

Skráning í fermingarnámskeið hausts (vikunámskeið í ágúst) og vetrar stendur nú yfir. Sjá nánar á fræðsluvef Ástjarnarkirkju og hér fyrir neðan.

Lesa áfram …

Ingi Þór, 6/6 2007

Hvítasunnudagur

Guðsþjónusta hvítasunnudag kl. 11 í samkomusal Hauka, Ásvöllum

Ingi Þór, 23/5 2007

Guðsþjónusta á gönguferð

Sunnudaginn 13. maí kl. 13

Lagt af stað frá samkomusal Hauka, Ásvöllum og haldið um Ástjörn og Ásfjall. Klæðnaður eftir veðri.

Ingi Þór, 8/5 2007

Aðalsafnarfundur 29. apríl 2007 – Skýrsla formanns

Velkomin á fimmta aðalsafnarfund Ástjarnarsóknar! Á starfsárinu voru haldnir 12 sóknarnefndarfundir og einn opinn safnarfundur vegna tilkomu tillögu að auglýsa beri embætti prest í Tjarnarprestakalli laust til umsóknar.
Lesa áfram …

Kerfisstjóri, 29/4 2007

Aðalsafnaðarfundur 29. apríl

Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar verður haldinn sunnudaginn 29. apríl kl. 12, að lokinni guðsþjónustu í samkomusal Hauka, Ásvöllum.
Dagskrá: venjuleg aðalfundarstörf, skýrslur nefnda, kosning nefndarmanna.

Ingi Þór, 18/4 2007

Helgihald í apríl

Helgihald

  • Laugardagurinn 21. apríl kl. 11 - fermingarguðsþjónusta í Hafnarfjarðarkirkju.
  • Sunnudagurinn 29. apríl kl. 11 - guðsþjónusta í samkomusal Hauka, Ásvöllum, aðalsafnaðarfundur eftir helgihaldið.

Foreldramorgunn
þriðjudaga kl. 10 - 12 í samkomusal Hauka, Ásvöllum.

TTT í Áslandsskóla
á þriðjudögum kl. 16 - 17.

Æskó 8. bekkjar í Áslandsskóla frá 23. janúar
á þriðjudögum kl. 20 - 22.

Barnakórsæfing
miðvikudaga kl. 16.30 - 18 í samkomusal Hauka, Ásvöllum. Enn pláss fyrir nýja meðlimi, stráka og stelpur.

Kirkjukórsæfing
fimmtudaga kl. 18 í Áslandsskóla. Alltaf pláss fyrir nýtt söngfólk.

Æskó 9. - 10. bekkjar í Áslandsskóla
fimmtudaga kl. 20 - 22

Ingi Þór, 18/4 2007

Markvisst að takmarkinu

Maður nokkur plægði akur sinn. Fram og aftur fór hann á eftir gamla dráttarklárnum, þrjúhundruð metra í hvert sinn. Að kveldi horfði hann yfir dagsverkið. Hvert plógfar var beint. “Hvernig ferðu að því að plægja svona,” spurði nágranni hans. “Jú, það er auðvelt að plægja beint, þegar maður hefur sett niður merki til að stefna á,” sagði maðurinn.

Horfðu beint af augum, ef þú vilt ná settu marki, misstu aldrei sjónar af takmarkinu. Þessi gömlu vísdómsorð gilda nánast hvar sem er, í lífi og leik, þegar byggja á upp eða breyta á gömlu hreysi í nýja höll. Þau gilda í viðskiptum og í mannlegum samskiptum. Þau gilda í stríði og líka þegar semja á frið. Þau gilda í trúnni, þegar við ákveðum að gera Jesúm Krist að merkinu, sem við miðum allt við. Lesa áfram …

Ingi Þór, 10/1 2007

24. desember

Aftansöngur í samkomusal Hauka að Ásvöllum.

Það var okkur, starfsfólki og sóknarpresti kirkjunnar mikið gleðiefni að 100 kirkjugestir skyldu koma til aftansöngs á aðfangadagskvöldi. Það er næstum tvöfalt fleiri en sóttu kirkjuna árið áður. Barnakór kirkjunnar söng með kirkjukórnum og er það gott að við náum að sameina krafta kynslóðanna þannig að úr verður ein hátíðleg og yndisleg heild. Takk fyrir samveruna.

Ingi Þór, 15/12 2006

Viðtalstímar sóknarprests
- - Þriðjudagar kl. 13-14
- Miðvikudagar kl. 15-16:30
eða eftir samkomulagi
í síma 565-0022 og 891 9628

 

Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS