Ástjarnarkirkja

 

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar falla niður þriðjudaginn 15.janúar. Næsta stund er þriðjudaginn 22.janúar kl.10

Ingi Þór, 14/1 2008

2. í jólum

26.desember kl. 11 verður útvarpsmessa fyrir alla fjölskylduna. Ingibjörg Sigurrós Gunnarssdóttir þverflautuleikari spilar undir ásamt
Helgu tónlistarstjóra og kirkjukórinn okkar leiðir safnaðarsöng. Sjöfn Ragnarsdóttir, aðstoðarleiðtogi í æskulýðsstarfi kirkjunnar mun flytja jólasögu.

Ingi Þór, 25/12 2007

Aðfangadagskvöld

Aftansöngur kl. 18 í kirkjunni þar messar Sr. Bára Friðriksdóttir. Eyjólfur Eyjólfsson einsöngvari syngur nokkur lög og Andri Eyjólfsson spilar undir. Kirkjukórinn leiðir söfnuðinn í söng undir stjórn Helgu tónlistarstjóra. Gott að hefja jólin á innilegri stund í húsi skaparans.

Ingi Þór, 23/12 2007

Yndislegt Aðventukvöld

Það var notalegt í kirkjunni í gær þegar rúmlega 100 manns komu saman og áttu yndislega stund. Það var gaman að sjá hvað það var mikill metnaður og undirbúningur lagður í allt enda stóðu allir sig með stakri prýði sem komu fram. Viljum við nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komu að hvort sem með tali eða tónum og ekki síst þeim sem komu í kirkjuna.

Ingi Þór, 3/12 2007

Fyrsta skírnin í Ástjarnarkirkju

<img width=

Fyrsta barnið var skírt í Ástjarnarkirkju 23. september. Hann heitir Björn Atli, sonur hjónanna Lóu Bjargar Björnsdóttur og Guðmundar Birgis Agnarssonar

Bára Friðriksdóttir, 22/10 2007

Messa 7. okt. kl. 11

Messað verður 7. október kl. 11. Sunnudagaskólinn er á sama tíma. Nýr tónlistastjóri, Helga Þórdís Guðmundsdóttir mun annast tónlist og leiða söng. Nýtt rikkilín verður tekið í notkun. Molasopi og ávextir að athöfn lokinni.

Bára Friðriksdóttir, 6/10 2007

Stúlknakór Ástjarnarkirkju

- Æfingar stúlknakórsins eru alla mánudaga kl. 15.15 og hefjast mánudaginn 8. sept.

    - Kóræfnigar Kórs Ástjarnarkirkju eru alla miðvikudaga kl. 19.30-21.00 og hefjast þann 3. sept.

Kerfisstjóri, 18/9 2007

Setið í hverju sæti

Það var setið í hverju sæti í kapellu Ástjarnarkirkju við Kirkjuvelli í messunni 16. september. Börn og fullorðnir voru sátt saman í byrjun messunnar en eftir dýrðarsöng komu börnin inn að altari og sungu saman, að því loknu héldu þau í safnaðarheimilið þar sem þau fengu fræðslu við sitt hæfi. Á meðan flutti dr. Gunnar Kristjánsson vekjandi predikun. Kapellan var helguð með Guðs orði, bæn og söng. Að því loknu fengu allir messukaffi yfir í safnaðarheimilinu.
Sóknarpresturinn og formaður sóknarnefndar eru hæstánægð með byrjun starfsins á nýjum stað.

Bára Friðriksdóttir, 16/9 2007

Fyrsta messan í Ástjarnarkapellu

Sunnudaginn 16. september verður kapellan og safnaðarheimilið í Ástjarnarsókn tekið í notkun með messu. Prófasturinn í Kjalarnesprófastsdæmi, dr. Gunnar Kristjánsson mun predika en sr. Bára Friðriksdóttir þjónar fyrir altari. Sóknarnefndarfólk aðstoðar við messuna. Sunnudagaskólinn hefst á sama tíma. Að messu lokinni eru veitingar í boði sóknarnenfdar.

Bára Friðriksdóttir, 13/9 2007

Nýr sóknarprestur tekinn til starfa

Nýr sóknarprestur, sr. Bára Friðriksdóttir tók til starfa 1. september í Ástjarnarsókn, en sú sókn tilheyrir Tjarnaprestakalli. Undir það heyrir einnig Kálfatjarnarsókn. Sr. Bára var sett inn í embætti af prófastinum dr. Gunnari Kristjánssyni í guðsþjónustu í Kálfatjarnarkirkju 2. september. Söfnuður Kálfatjarnarsóknar bauð í messukaffi á eftir. Fjölmenni tók á móti nýjum sóknarpresti með frómum óskum.

Bára Friðriksdóttir, 6/9 2007

Viðtalstímar sóknarprests
- - Þriðjudagar kl. 13-14
- Miðvikudagar kl. 15-16:30
eða eftir samkomulagi
í síma 565-0022 og 891 9628

 

Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS