
Næstkomandi sunnudag hefjum við hefðbundið vetrarstarf kirkjunnar. Við opnum það með glæsibrag og þér er boðið að slást í hópinn. Allir aldurshópar eiga heima með okkur þennan dag. Við byrjum með helgistund í kapellu Ástjarnarkirkju þar sem sóknarpresturinn talar út frá listaverkunum sem börnin gerðu á sumarnámskeiði hjá okkur. Síðan færum við okkur til og bjóðum upp á pylsur, svala, kaffi og kex til kirkjugesta. Börnin fá andlitsmálun, kandýflos ef vill og geta leikið sér í skemmtidagskrá sem leiðtogar í æskulýðsstarfi stýra.
Það væri okkur starfsfólki kirkjunnar ánægja að sjá sem flesta með okkur.
Bára Friðriksdóttir, 20/8 2008
Ánægjulegri viku í barnastarfi kirkjunnar lauk s.l. föstudag. Þrjátíu og tvö börn voru á námskeiðinu og tuttugu og fjögur á biðlista. Þetta gefur vísbendingu um að við þurfum að fjölga slíkum vikum.

Börnin gerðu mörg listaverk sem hafa táknrænar tilvísanir. Þau verða til sýnis sunnudagsmorguninn 24. ágúst kl. 11 - 13 en þá munum við hefja vetrarstarfið með helgistund, skemmtidagskrá, kandýflosi, pylsum og magnaðri samveru.
Þú ert hjartanlega velkomin/n með fjölskyldu þinni.
Bára Friðriksdóttir, 20/8 2008
Mánudagur
Kirkjugrallarar - leikjanámskeið Ástjarnarkirkju
Unnið er með hendur og hvað maður getur gert með höndunum gott og slæmt. Búnir verða til krossar úr höndum barnanna og hengdir upp í kapellunni.
Þriðjudagur
Kirkjugrallarar - leikjanámskeið Ástjarnarkirkju
Við göngum að Ástjörn, vatninu sem kirkjan dregur nafn sitt af, þar sem við ræðum um náttúruna og mikilvægi þess að við pössum upp á hana. Einnig munum við reisa vörðu sem tákn um vörðuna í lífinu sem er Guð.
Miðvikudagur
Kirkjugrallarar - leikjanámskeið Ástjarnarkirkju
Við tölum um að við öll skiptum máli og við séum öll tengd. Börnin setja nafnið sitt og þeirra sem þeim þykir væntum á laufblöð sem hengd eru á tré inn í Kapellu. Með því sjá þau að Guð er stofninn í lífinu og við öll laufblöð á honum.
Fimmtudagur
Kirkjugrallarar - leikjanámskeið Ástjarnarkirkju
Grillveisla og gaman. Við munum ræða um Nóa og flóðið og teikna dýrin sem voru um borð í örkinni og líma þau inn í örkina. Eftir það förum við út í leiki og enda á því að grilla. Munið að þið þurfið ekki að koma með nesti nema þið viljið ekki fá pylsur og svala.
Föstudagur
Kirkjugrallarar - leikjanámskeið Ástjarnarkirkju
Við munum ræða um hjálparstarf og hvað við höfum það gott miða við fólk sem býr í löndum þar sem ekkert hreint vatn er, engin matur og sjúkdómar fara ílla með heilu þjóðirnar. Við munum einnig teikna myndir af góðri og slæmri hegðun hjá okkur.
Ingi Þór, 11/8 2008
Nú fer æskulýðsstarf kirkjunnar að koma úr sumarfríi og fyrsti viðburður þessa starfsárs er vikudagskrá fyrir 1-4.bekk 6 til 9 ára. Nánari upplýsingar eru hér fyrir neðan. Vonum við að sem flestir sjá þetta sem frábært tækifæri til að hefja góðan vetur með kirkjunni.
KIRKJUGRALLARAR
Leikjanámskeið Ástjarnarkirkju Vikuna 11.-15.ágúst ætlar Ástjarnarkirkja að bjóða upp á hálfsdagsnámskeið fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. (1.-4.bekk) Námskeiðið sjálft er á milli kl.9 og 12 en gæsla frá kl. 8 til 9 og frá kl.12 til 13. Farið verður í leiki, sungið saman, fræðst um trúna, lífið og tilveruna í leik og starfi.
Mikilvægt er að börnin komi með nesti og séu með fatnað til að vera úti því farið verður í gönguferðir, leiki og fleira utandyra.
Námskeiðið er ÓKEYPIS fyrir börnin. Mikilvægt er að skrá börnin fyrirfram því aðeins komast 30 börn á námskeiðið.
Hægt er að skrá á námskeiðið á tölvupóstfang: ingithor@kirkjan.is. Taka þarf fram fjöldi barna, fullt nafn, aldur, nafn foreldra/forráðamanna, símanúmer og ofnæmi/önnur veikindi sem skipta máli.
Við vonumst til að sjá sem flesta í ágúst
Ingi Þór Æskulýðsfulltrúi og leiðtogar Ástjarnarkirkju
Ingi Þór, 5/8 2008
Þeir unglingar sem ætla að fermasst á vegum Ástjarnarkirkju þurfa að skila inn skráningarblaði þar sem fram koma nauðsynlegar upplýsingar. Hér að neðan er skráningarblað sem hægt er að afrita og koma upplýsingum til kirkjunnar eftir verslunarmannahelgi. Opið frá 10 - 13.
Skráning til fermingar í Ástjarnarkirkju
veturinn 2008 – 2009
Hjartanlega velkomin/n í fermingarhópinn!
Fullt nafn:____________________________________________________________
Heimili, pn:____________________________________________sími:___________
netfang foreldra:_______________________________________________________
Nöfn,staða og heimili beggja forledra/forráðamanna, (ef annað for. býr annars staðar komi það fram):________________________________________________________
____________________________________________________________¬¬¬¬¬¬_________
Kennitala: ___________________Fæðingarstaður:____________________________
Skírnardagur og- staður:_________________________________________________
Fermingarfræðslan hefst fyrstu viku í september staðsetning og stund kynnt síðar.
Fermingarmessur:
Stefnt er að 4 fermingarmessum vorið 2009 í Hafnarfjarðarkirkju. Ef mjög fáir skrá sig á einhverja stundina geta orðið breytingar.
4. apríl kl. 10:00 ___og kl. 14:00___; 18. apríl kl. 10:00___og kl. 14:00___
Fermingarárið er tími breytinga hjá unglingunum. Þau eru að þreyfa sig áfram við að fara úr barnshlutverkinu og yfir í hlutverk hins fullorðna. Kirkjan vill mæta þeim á þessum tímamótum og styðja þau í trúaruppeldi. Við þörfnumst stuðnings frá ykkur foreldrunum. Ég býð ykkur hjartanlega velkomin í helgihald safnaðarins með fermingarbarninu en messur verða 1. og 3. sunnudag hvers mánaðar kl. 11.
Vinsamlegast skilið þessu blaði, með upplýsingum og óskum ykkar sem fyrst. Einstökum atriðum má bæta við síðar, símleiðis eða í viðtölum.
Annað:
Með blessunaróskum, Bára Friðriksdóttir, sóknarprestur.
Bára Friðriksdóttir, 23/7 2008
Mánudagur
Kvennagönguhópur kl.20:15 í Kirkjunni
Fimmtudagur
TTT aukafundur kl.17-18 í Áslandinu Leikir og fjör úti
ÆSKÓ í Áslandinu kl.20 Sundferð
Ingi Þór, 9/6 2008
Þriðjudagur
Foreldramorgnar í kirkjunni kl.10-12 LOKASTUND
Kvennagönguhópur kl.20:15 í Kirkjunni
Fimmtudagur
TTT aukafundur kl.17-18 í Áslandinu Leikir og fjör úti
ÆSKÓ í Áslandinu kl.20 Keiluferð allir að taka með sér 1000 kall
Ingi Þór, 1/6 2008
Mánudagur
TTT í Áslandinu Óvissuferð kl.13 frá Áslandsskóla. Allir að mæta með 500 kr. LOKASTUND
Þriðjudagur
Foreldramorgnar í kirkjunni kl.10-12 TTT í Áslandsskóla fyrir 5.-6.bekk kl.16-17 Risafótbolti
Kvennagönguhópur kl.20:15 í Kirkjunni
Fimmtudagur
Æskó í Áslandinu kl.20 Myndir sýndar úr ljósmyndamaraþoni og spilað
Ingi Þór, 26/5 2008
Mánudagur
TTT í Kirkjunni kl.16-17 Furðumót og grill LOKASTUND
ÆSKÓ í Kirkjunni kl.20 Eitthvað óvænt!!! LOKASTUND
Þriðjudagur
Foreldramorgnar í kirkjunni kl.10-12 Alma María Rögnvaldsdóttir, hjúkrunarfræðingur ræðir um næringu barna
TTT í Áslandsskóla fyrir 5.-6.bekk kl.16-17 Risafótbolti
TTT í Áslandsskóla fyrir 7.bekk kl.17-18 Risafótbolti
Kvennagönguhópur kl.20:15 í Kirkjunni
Miðvikudagur
Kóræfing kl.19:30 í kirkjunni
Sunnudagur
Síðasta messa þessa vetrar verður á Hvítasunnudag kl.11 og þá eru fermingarbörn næsta árs og foreldrar þeirra sérstaklega boðið. Vonumst til að sjá sem flesta.
Ingi Þór, 5/5 2008
Mánudagur
Kirkjuprakkarar í Áslandsskóla kl.14:30-15:15
TTT í Kirkjunni kl.16-17 Bænabönd
Æskó kl.20 í Kirkjunni. Bíómyndakvöld
Þriðjudagur
Foreldramorgnar kl.10-12 í kirkjunni
TTT 5.-6.bekk í Áslandsskóla kl.16-17 Furðumót
TTT 7.bekk í Áslandsskóla kl.17-18 Furðumót
Kvennagönguhópur kl.20:15 frá Kirkjunni
Miðvikudagur
Kóræfing kl.19:30 í Kirkjunni
Sunnudagur
Gönguguðsþjónusta verður kl. 11. Lagt af stað frá kirkjunni, gengið um nágrenni Ástjarnar, lesið úr ritningunni, hugleiðing og bæn. Prestur sr. Bára Friðriksdóttir, tónlistarstjóri Helga Þórdís Guðmundssdóttir og félagar úr kór Ástjarnarkirkju styðja safnaðarsöng. Kaffi og spjall á eftir í safnaðarheimilinu.
Ingi Þór, 28/4 2008