Fjölskylda
Ástjarnarkirkju er annt um fjölskyldurnar í hverfinu og vill mæta þeim á sem flestan hátt. Viljum við hvetja þig til að hafa samband ef það er eitthvað sértakt sem þú og þín fjölskylda vill að kirkjan bjóði upp á. Einnig munum við kynna allar nýjungar á heimasíðunni og í fréttabréfum kirkjunnar.
Foreldramorgnar
Alla þriðjudaga frá kl.10 til 12. Heitt kaffi á könnunni, spjall og dót fyrir börnin. Hvetjum við alla foreldra sem eru heimavið á þessum tíma að kíkja við og eiga samverustund með okkur.
Sunnudagaskóli
Alla sunnudaga kl.11 fyrir börn og fullorðna. Eftir hverja stund er boðið í liti og leiki, ávöxtum og djúsi. Kaffi á könnunni fyrir fullorðna fólkið.
Messur
Fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar kl.11. Kórinn okkar leiðir safnaðarsöng en allir hvattir til að taka þátt. Góð byrjun á deginum!
Ef spurningar vakna eða ábendingar um starfið hafið þá samband við Sr.Báru Friðriksdóttur í farsíma: 891 9628 eða netfang: bara.fridriksdottir@kirkjan.is