Ástjarnarkirkja

 

Ferming

Fermingarbörn Ástjarnarkirkju fermast flest í Hafnarfjarðarkirkju, fermingardagar árið 2010 er sem hér segir (m. fyrirvara um breytingar):

laugardaginn 9. apríl 2011 kl. 10:30 og kl. 13:30

laugardaginn 16. apríl 2011 kl. 10:30 og kl. 13:30

Hægt er að nálgast skráningarblaðið hér að neðan og senda Sr.Báru Friðriksdóttur á netfangið: bara.fridriksdottir.is

skráningarblað-ferming

Fermingarundirbúningurinn hefst með fundi fermingarárgangsins að hausti þar sem farið er yfir það sem framundan er. Fermingarbörnin sækja

  • fermingartíma
  • helgihald í söfnuði sínum.
    Þau sem vilja, fá hlutverk í helgihaldinu, lesa texta og bænir, aðstoða o.fl.
  • fermingarbarnamót
  • fjölskyldusamverur og fundi

skv. námsskrá fermingarstarfa, sem gildir í Þjóðkirkju Íslands.

Fermingarbörnin fá lista yfir þau atriði sem þau þurfa að kunna fyrir fermingu og er hann hér fyrir neðan. Auk þess þurfa þau að kunna minnisversið sitt sem þau velja sjálf eftir áramót.

minnislisti

Hér að neðan er skjal með hugmyndum að minnisversum sem fermingarbörnin geta valið úr en hann er ekki tæmandi og um að gera að fjölskyldan hjálpist að við að velja.

Minnisvers

Ef spurningar vakna um fermingarfræðsluna eða ferminguna þá skal hafa samband við Sr.Báru Friðriksdóttur í Farsími: 891 9628 eða með tövupósti: bara.fridriksdottir@kirkjan.is.

Einnig er hægt að kíkja á spurt og svarað um fermingu á Trú.is

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS