Ástjarnarkirkja

 

Erfiðleikar

Ýmislegt getur komið upp á, þannig að hjálpar er þörf, og þá er ekki gott að þurfa að bíða til næsta viðtalstíma eða opnunartíma. Presturinn er skv. erindisbréfi sínu ætíð til staðar til aðstoðar, ef nauðsyn ber til. Sumt er þannig að símtal eða heimsókn nægir til þess að lausn finnist. Annað er þannig að fleiri þurfa að koma að. Sé um fjárhagsaðstoð eða mataraðstoð getur prestur þurft að leita til Hjálparstarfs kirkjunnar til þess að leyst verði úr málum. Best er að bíða ekki fram á síðustu stundu til að nefna vanda sem krefst slíkra úrlausna heldur gefa sér helst viku til þess undirbúa slíkt.

Þú nærð í prestinn þinn, Báru Friðriksdóttur, í síma 891 9628 eða með tölvupósti bara.fridriksdottir@kirkjan.is Ef alls ekki er hægt að ná í hana, leysir Bragi J. Ingibergsson hana af, sími hans er 894 7173, hs. 565 5961 og í gegnum www.vidistadakirkja.is.

Hjálparstarf kirkjunnar Vatnsstíg 3, 101 Reykjavík. Sími 562 4400

Útvarpsþáttur um þungyndi (enska)

Fjölskylduþjónusta kirkjunnar Klapparstíg 25-27, 5 hæð 101 Reykjavík. Sími 562 3600

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS