Ástjarnarkirkja

 

Göngumessa upp á Ásfjall næsta sunnudag

Sunnudaginn 27. júní 2010 verður göngumessa safnaðarins. Lagt verður af stað kl. 11 frá Ástjarnarkirkju, Kirkjuvöllum 1 Hafnarfirði. Lesið upp úr Fjallræðunni á leiðinni. Þema ræðunnar  á fjallinu verður samkynhneigð, gagnkynhneigð og kristni. Skoðuð verða ýmis sjónarhorn og varpað ljósi ritskýringar á erfiðan texta í Rómverjabréfinu.

Fólk er hvatt til að klæðast eftir veðri. Þau sem vilja, koma með göngustafi en allir með góða skapið. Kakó og vatn fyrir gönguþyrsta á toppnum. Þar munum við samgleðjast samkynhneigðum og fjölskyldum þeirra.

Allir hjartanlega velkomnir. Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri og séra Bára Friðriksdóttir leiða stundina.

Bára Friðriksdóttir, 24/6 2010 kl. 11.18

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS