Ástjarnarkirkja

 

Góð göngumessa á Ásfjall

Hlustað á fjallræðuna á leið upp á Ásfjall

Hlustað á fjallræðuna á leið upp á Ásfjall

 

Veðrið lék við messugesti sem örkuðu upp á Ásfjall sunnudaginn 27. júní. Börn og fullorðnir nutu hreyfingarinnar, upplesturs úr fjallræðunni og samverunnar. Við vörðuna var drukkið kakó og vatn, predikun hljómaði og söngur. Aðvífandi göngufólk staldraði við og hlustaði. Stefnt er að annarri göngumessu að ári.

Þetta var síðasta messa fyrir sumarfrí. Næsta guðsþjónusta í Ástjarnarkirkju verður sunnudaginn 22. ágúst kl. 11.

Merki:

Bára Friðriksdóttir, 29/6 2010 kl. 11.52

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS