Vel heppnuð U2 messa
U2 messan í kvöld stóðst björtustu vonir. Minni salur Haukahússins var troðfullur. Rúmlega 300 manns hlýddu á fagran söng Ástjarnarkórsins, Svenna Þórs og Regínu Óskar. Hljómsveit Hjartar Howser spilaði melódíur U2 undir og prestarnir lögðu inn Guðs orðið. Spilað var myndband með viðtali við Bono og af tónleikum sveitarinnar. Undir lokin leiddi sóknarnefndarfólk almenna kirkjubæn fyrir fátækum, kúguðum, arðrændum og fyrir ríkistjórnum allra landa. Beðið var fyrir réttlæti og jöfnuði. Söfnuðurinn fagnaði tónlistinni vel með kröftugu lófataki. Upp úr samskotabauki við útganginn komu rúmar 50.000 krónur og margir fóru heim með reikningsnúmer Hjálparstarfs kirkjunnar því allt féð rennur til innanlands og utanlands aðstoðar Hjálparstarfs kirkjunnar. Ágóði guðsþjónustunnar verður því ekki bara ánægja og blessun þeirra sem nutu, hún brauðfæðir íslenskar og afrískar fjölskyldur. Takk fyrir framlagið.
Helga Þórdís Guðmundsdóttir útsetti tónlistina en fimm textar Bono voru þýddir af sr. Gunnari Sigurjónssyni og var þetta frumflutningur á Íslandi. Helgu og sr. Gunnari eru færðar sérstakar þakkir fyrir framlag þeirra til þessa vel heppnaða kvölds.
Hér má sjá nokkrar myndir frá guðsþjónustunni.
- fyrsta U2 messan
- U2 messa og Bono
- Regína Ósk og Svenni Þór
- Hjörtur Howser
- Regína Ósk syngur
- Kórinn
- Svenni Þór í U2 sveiflu
Bára Friðriksdóttir, 13/5 2010 kl. 23.58













