Ástjarnarkirkja

 

U2 messan nálgast

 

Við í kirkjunni finnum fyrir aukinni eftirvæntingu fyrir U2 messunni sem verður að kvöldi uppstigningardags 13. maí kl. 20 í Haukahúsinu. Gestasöngvarar verða Regína Ósk og Svenni Þór. Fólk er farið að spyrja presta, starfsfólk og kórfélaga um U2 messuna. Mikill áhugamaður um U2 sem farið hefur á tónleika með honum sagði undirritaðri að Bono héldi alltaf predikanir á sínum tónleikum og gætu þær orðið 20 mín. langar. Þá stíga aðrir hljómsveitarmeðlimir af sviði og leyfa honum að eiga orðið. Orð fagnaðarerindisins sem hann gjarnan boðar.

Hjá okkur mun sr. Kjartan boða fagnaðarerindið en ég lofa ykkur því að hugvekja hans verður ekki lengri en 5 mínútur.  Mætum og verum saman í stuði með Guði.

Bára Friðriksdóttir, 4/5 2010 kl. 19.41

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS