Ástjarnarkirkja

 

Lokahátíð Sunnudagskólans myndir

 

Sunnudaginn, 2.maí, var mikið um dýrðir í kirkjunni. Dagurinn byrjaði með fjölskylduguðsþjónustu, sem sunnudagaskólinn féll inn í. Sr.Bára stjórnaði stundinni og kirkjukórinn söng undir stjórn Helgu Þórdísar. Sunnudagskólabörnin og leiðtogar þeirra tóku virkan þátt og sungu mörg fjörug sunnudagaskólalög. Kirkjan var þéttskipuð frábærum gestum og þar ríkti mikil gleði og góð stemning.

 

Eftir guðsþjónustuna færðu kirkjugestir sig út á planið fyrir utan þar sem búið var að blása upp glæsilegan hoppukastala og setja pylsur á grill. Þetta kunnu allir vel að meta og hoppuðu og skoppuðu í kastalanum, gæddu sér á ljúffengum pylsum og slökktu þorstann með ísköldu djúsi eða sjóðheitu kaffi allt eftir aldri og ástæðum. Síðan settust sumir gestanna inn í  safnaðarheimilið til að lita og spjalla, aðrir hoppuðu áfram í kastalanum og enn aðrir fóru í æsilega útileiki með sóknarprestinum og leiðtogum sunnudagaskólans. Veðrið lék við mannskapinn og þótt hitastigið væri ekki hátt þá virtist vor í lofti og hjörtum kirkjugesta þennan dag.

 

 

 

 

  

Ingi Þór, 9/5 2010 kl. 17.55

     

    Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði, S: 565 0022. Sími 8919628 · WP · Kerfi RSS